Barnaníðingur gómaður með barnaklám eftir flug frá Keflavík
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 6. nóvember 2026 11:30
Barnaníðingurinn var á Íslandi í október.
Þrítugur maður var handtekinn á flugvellinum í Portland í Oregon fylki eftir flug frá Íslandi. Barnaklám fannst hjá honum.
Þetta kemur fram í tilkynningu saksóknaraembættisins í Oregon.
Alec Joseph Adams, 30 ára, var handtekinn eftir flug frá Keflavík þann 28. október síðastliðinn. Hefur hann verið ákærður fyrir vörslu barnakláms. Um er að ræða bæði ljósmyndir og myndbönd.
„Á bak við hverja einustu mynd og myndband sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum eru raunveruleg fórnarlömb,“ segir Scott E. Bradford, saksóknari. „Dómsmálaráðuneytið stendur fast við skuldbindingu sína um að vernda börn gegn misnotkun og sækja af festu til saka einstaklinga sem hafa undir höndum, framleiða eða dreifa efni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.“
Adams var tekinn í skoðun vegna þess að hann var þegar á skilorði fyrir kynferðisbrot gegn barni. Það er fyrir að hafa tælt barn á netinu og misnotað það kynferðislega.
Barnaklámið fannst í falinni möppu í símanum hans. Það er fjölmargar myndir af börnum, bæði á og undir kynþroskaaldri, nakin og í kynferðislegum athöfnum með fullorðnum.
Adams gæti átt allt að 20 ára fangelsisdóm yfir höfði sér vegna málsins. Sem og 250 þúsund dollara sekt, það er 30 milljón króna, og ævilangt eftirlit.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗