Fjöldi fólks bregst við eftir að klámstjarna var gerð að sendiherra

Leicester City hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að aðalstyrktaraðili félagsins, veðmálafyrirtækið BC Game, gerði klámstjörnuna Evu Elfie að nýjum sendiherra sínum.

Samstarfið hefur vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna Leicester, en merki BC Game hefur verið framan á treyjum félagsins frá árinu 2024.

Stuðningsmannasamtökin Foxes Trust hafa gagnrýnt ákvörðunina harðlega og telja að hún samræmist ekki gildum félagsins.

„Bæði fjárhættuspil og klám geta haft alvarleg áhrif á líf fólks, sérstaklega ungs fólks,“ sögðu samtökin í yfirlýsingu.

Leicester hefur nú brugðist við gagnrýninni.

„Við skiljum þær áhyggjur sem hafa komið fram vegna nýjustu ákvarðana BC Game. Við höfum komið þeim beint á framfæri við fyrirtækið og erum í viðræðum um lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

Leicester hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár og leikur nú í ensku C-deildinni eftir tvö falltímabil í röð.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅