Rannsaka misnotkun fjármuna í tengslum við slysið

Saksóknarar gefa ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Saksóknarar gefa ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. AFP/Oscar Del Pozo

Evrópusambandið rannsakar mögulega misnotkun á fjármunum ESB sem eyrnamerktir voru endurbótum á spænskri járnbrautarlínu þar sem 69 manns létust í lestarslysi, að því er saksóknarar greina frá.

Slysið, sem varð í október á háhraðalínunni milli Madrídar og Sevilla, var eitt versta járnbrautarslys í Evrópu á þessari öld og varpaði skugga á komandi þingkosningar á Spáni í nóvember.

Sambærileg rannsókn á sama kafla brautarinnar hafði þegar verið hafin í mars í kjölfar annars slyss sem kostaði 46 manns lífið í Andalúsíu-héraði í suðurhluta landsins, að sögn evrópskra saksóknara.

Lögreglan styður við rannsóknina

„Í dag framkvæmir Evrópska ríkissaksóknaraembættið (EPPO) í Madríd á Spáni rannsóknaraðgerðir hjá Rekstraraðila járnbrautarinnviða (ADIF), Járnbrautaröryggisstofnun ríkisins (AESF) og Ríkisendurskoðun Spánar,“ sagði í yfirlýsingu frá EPPO.

„Þetta kemur í kjölfar þess að hafin var rannsókn á mögulegum svikum sem varða fjármuni ESB sem úthlutað var til endurbóta og uppfærslu á öryggis-, merkja- og fjarskiptakerfum á háhraðajárnbrautarlínunni Madríd–Sevilla,“ bætti EPPO við, en tók fram að ekki yrðu gefnar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Spænska lögreglan styður við rannsóknina, að því er fram kom í yfirlýsingunni.

Slysið varð þegar lest á vegum ríkisfyrirtækisins Renfe ók aftan á kyrrstæða lest í eigu spænska einkafyrirtækisins Iryo skammt frá þorpinu Urda, um 130 kílómetrum sunnan við Madríd.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅