Linda ósátt við ferðaþjónustufyrirtæki – Segir ferðamenn senda í lífshættu

Linda Sigurðardóttir, félagsliði og móðir, segist oft hafa velt því fyrir sér hvers vegna ferðafyrirtæki halda áfram að fara með ferðamenn niður í Reynisfjöru.

Reynisfjara er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins en jafnframt einn sá hættulegasti. Stórar öldur geta og hafa hrifsað fólk á haf út og það ekki náð að komast aftur í land. Meðal annars lést níu ára þýsk stúlka í fjörunni í ágúst í fyrra.

Sjá einnig: Ferðamenn hætt komnir í Reynisfjöru - „Þessi fá Darwinverðlaunin“

Linda skrifar um málið í pistli á Vísi.

„[Það] hlýtur að vera hægt að njóta þessarar náttúrufegurðar án þess að leggja líf sitt í hættu. Viðvörunarskilti og öryggisráðstafanir hafa verið sett upp en reynslan hefur sýnt að það dugar ekki alltaf til. Fólk vanmetur kraftinn í sjónum og ein óvænt alda getur haft skelfilegar afleiðingar,“ segir Linda og spyr:

„Væri ekki skynsamlegra að ferðafyrirtæki létu ferðamenn njóta útsýnisins úr öruggri fjarlægð í stað þess að beina þeim niður í fjöruna? Hafa útsýnispall þar sem hægt væri að sjá úr fjarlægð?“

Linda segir að einnig mætti leggja meiri áherslu á aðra fallega staði á Íslandi, en hún segir ábyrgðina liggja á ferðafyrirtækjum.

„Ferðaþjónustan ber ábyrgð á að fara með ferðamenn á þessa staði og auglýsa þá í miklum mæli, þrátt fyrir að fólk geti auðveldlega lent í mikilli hættu og drukknað.

Hversu mörg slys þurfa eiginlega að verða áður en við ákveðum að öryggi fólks skipti meira máli en ljósmyndin?“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅