Ungstirni Liverpool fær tækifæri með enska landsliðinu
Rio Ngumoha leikmaður Liverpool hefur verið valinn í enska landsliðshópinn í fótbolta fyrir komandi verkefni.
Þjóðverjinn Thomas Tuchel tilkynnti hóp sinn í dag en England mætir Króatíu heima og heimsmeisturum Spánar úti í glugganum.
Hinn 18 ára gamli Ngumoha hefur spilað vel með Liverpool í upphafi leiktíðarinnar.
Jobe Bellingham, leikmaður Dortmund í Þýskalandi, hefur þá verið valinn í fyrsta sinn en hann verður með bróður sínum Jude Bellingham í landsliðinu.
Fyrirliðinn Harry Kane er á sínum stað sem og lykilmennirnir Declan Rice, Elliot Anderson og Anthony Gordon.
Tuchel ákvað þá ekki að taka Cole Palmer leikmann Chelsea þó að hann væri heill.
For the final time in 2026… 🥁 Your #ThreeLions squad for November camp! 🦁 🏴
— England (@England) November 6, 2026
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗