Þetta skaltu gera ef sprengjuhótun berst
Í gátlista ríkislögreglustjóra er starfsfólki meðal annars ráðlagt að halda hringjanda á línunni eins lengi og mögulegt er ef sprengjuhótun berst í síma. Ljósmynd/Colourbox
Haltu ró þinni, ekki leggja á og reyndu að fá sem mestar upplýsingar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í sérstökum gátlista ríkislögreglustjóra um viðbrögð við sprengjuhótunum sem sendur hefur verið skólastjórnendum í Reykjavík.
Eins og mbl.is greindi frá í gær bárust sprengjuhótanir einhverjum stofnunum Reykjavíkurborgar. Ekki hefur fengist staðfest hvort skólar séu þar á meðal.
Með leiðbeiningunum fylgir tveggja blaðsíðna gátlisti þar sem farið er ítarlega yfir hvernig starfsfólk eigi að bregðast við ef sprengjuhótun berst í síma.
Í gátlistanum er farið yfir hvernig bregðast skuli við sprengjuhótun sem berst í síma. Skjáskot/Ríkislögreglustjóri
Starfsfólki er meðal annars ráðlagt að halda viðkomandi á línunni eins lengi og mögulegt er og vekja athygli samstarfsfólks á hótuninni svo hægt sé að gera lögreglu viðvart.
Þá er lagt til að spyrja hringjandann hvar sprengjan sé, hvenær hún muni springa, hvers konar sprengiefni sé notað og hvers vegna viðkomandi standi að hótuninni.
Einnig á að skrá niður það sem sagt er, helst orðrétt, og taka eftir rödd, málfari og bakgrunnshljóðum.
Í gátlistanum er meðal annars gert ráð fyrir að starfsfólk meti hvort hringjandinn virðist æstur, ölvaður, taugaveiklaður, hlæjandi eða reiður. Þá er sérstaklega tekið fram að hlusta skuli eftir bakgrunnshljóðum, svo sem umferðarnið, tónlist, hlátri eða vélritunarhljóðum.
Í gátlistanum er sérstaklega tekið fram að ekki skuli leggja á þótt sá sem ber fram hótunina slíti símtalinu.
Starfsfólk þekkir húsnæðið best
Í leiðbeiningunum kemur jafnframt fram að leit í húsnæði þar sem sprengjuhótun berst sé oft best framkvæmd af þeim sem þar starfa og dvelja, enda þekki þeir umhverfið og geti áttað sig á því hvort óvenjulegir hlutir séu á staðnum.
Finnist grunsamlegur hlutur skal þó ekki snerta hann eða hreyfa heldur tilkynna lögreglu, sem ákveður hvort rýma þurfi húsnæðið.
Í leiðbeiningunum er einnig farið yfir viðbrögð við hótunum sem berast með bréfpósti eða tölvupósti. Í báðum tilvikum er lögð áhersla á að varðveita möguleg sönnunargögn fyrir lögreglurannsókn.
Ríkislögreglustjóri hefur tekið saman leiðbeiningar um viðbrögð við sprengjuhótunum sem sendar hafa verið skólastjórnendum í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


