Í forgangi að opna aftur: „Þetta er líflínan okkar“

Lögreglan rannsakar eldsupptökin.

Líklegt er að upptök eldsins sem kviknaði í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi í nótt hafi orðið í vörumóttökunni.

Þetta segir Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar, aðspurð, í samtali við mbl.is.

„Það er aldrei gott að fá svona símtal en svona er lífið. Þeir hringdu í mig í nótt og ég dreif mig af stað. Þeir voru um það bil búnir að slökkva eldinn þegar ég kom en það var mikill reykur,“ segir Hrönn.

Hún segir að lögreglan rannsaki nú upptök eldsins. Mjög líklega hafi þau verið í vörumóttökunni þar sem alls konar dót var geymt.

Nytjamarkaðurinn er illa farinn eftir eldsvoðann.

Ólíklegt að eitthvað sé heilt

„Búðin var full af frábærum vörum sem þið eruð búin að gefa okkur til að selja fyrir gott málefni. Við þurfum eflaust að skipta þessu öllu út. Það er reykur úti um allt og mikið sót. Mér finnst ólíklegt að það sé eitthvað heilt, en hugsanlega innanstokksmunir,“ bætir Hrönn við og nefnir að gríðarleg verðmæti hafi verið í vörunum.

Forgangsverkefni að opna sem fyrst

Hún tekur fram að ABC njóti mikils velvilja úti í samfélaginu, sem þau séu ákaflega þakklát fyrir.

„Ég hef fulla trú á að við fyllum búðina af nýjum vörum um leið og við getum opnað aftur,“ segir hún. Forgangsverkefni þeirra sé að opna aftur sem fyrst á sama stað en framhaldið muni skýrast betur um helgina.

„Þetta er líflínan okkar, okkar aðalfjármögnun fyrir utan beina fjárstyrki foreldra til barna þannig að okkur er mikið í mun að ná að opna sem fyrst.“

Nytjamarkaðurinn flutti í húsnæðið á Smiðjuvegi um síðustu áramót en áður var hann á Nýbýlavegi. Einnig er lítill markaður á vegum ABC starfræktur við Hlemm.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅