Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni tekinn af löggunni - Gekk um götur með boga og örvar
Amar Dedic, varnarmaður Newcastle United, komst í kast við lögregluna í Englandi á miðvikudaginn eftir að hann sást ganga um sveitir Northumberland með boga og örvar.
Samkvæmt The Sun og Daily Mail hafði göngumaður samband við lögreglu eftir að hafa séð tvo menn bera bogann nálægt uppistöðulóni skammt frá Newcastle.
Lögreglan tók tilkynninguna alvarlega og sendi að minnsta kosti sex lögreglubíla á vettvang, þar á meðal vopnaða lögreglumenn.
Dedic, sem er 24 ára landsliðsmaður Bosníu, var síðar stöðvaður ásamt félaga sínum.
Eftir yfirheyrslu kom í ljós að búnaðurinn var ætlaður til tómstundaiðkunar og engin hætta hafði stafað af mönnunum.
Lögreglan lagði þó hald á bogann og örvarnar.
„Á þessu stigi teljum við að búnaðurinn hafi verið ætlaður til afþreyingar og engin ógn hafi verið við almenning. Rannsókn málsins heldur áfram,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Veiðar með boga og örvum eru ólöglegar í Bretlandi.
Samkvæmt Daily Mail mun Newcastle ekki beita Dedic agaviðurlögum vegna atviksins.
Bosníumaðurinn gekk til liðs við Newcastle frá Benfica í sumar fyrir 29,5 milljónir punda og hefur staðið sig vel þrátt fyrir erfiða byrjun liðsins á tímabilinu.
Atvikið þykir þó sýna ákveðið dómgreindarleysi hjá varnarmanninum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗