Íris sögð hafa veist að brotaþolum eftir réttarhald

Aðalmeðferð í máli gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur hélt áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir þolendur í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur hafa fengið nálgunarbann á hendur henni. 

Kemur þetta fram í umfjöllun Heimildarinnar, en heimildir mbl.is herma það sama.

Á Íris að hafa setið fyrir þeim ásamt fjölskyldu sinni á miðvikudagskvöld eftir þriðja dag aðalmeðferðar í máli gegn henni.

Eru þolendurnir annars vegar fyrrverandi kærasti hennar og hins vegar sambýliskona hans en stór hluti ákæruliðanna á hendur Írisi er vegna brota gegn þeim. 

Tólf mánaða nálgunarbann

Nálgunarbannið varir í tólf mánuði en samkvæmt íslenskum lögum er það hámarkstími sem nálgunarbann má standa yfir í. Var það lagt fram fyrir dómara strax í morgun og mætti kærustuparið því ekki í dómsal í dag.

Frænka annars brotaþolans bar vitni í dag og sagði mikla sorg fólgna í því að parið viti nú að það munu aldrei geta um frjálst höfuð strokið vegna Írisar.

Íris er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. Aðalmeðferð í máli hennar heldur áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅