Starfa nú undir merkjum Origo
Árni Geir Valgeirsson, forstjóri Origo, Kristín Gestsdóttir, mannauðsstjóri Origo, Helgi Hrafn Halldórsson, forstöðmaður gagna og gervigreindar hjá Origo og Brynjólfur Borgar Jónsson, stofnandi Datalab og AI erindreka hjá Origo.
Tæknifyrirtækið Origo hefur lokið samþættingu félaganna Maven og Datalab við starfsemi sína. Félögin munu framvegis starfa undir merkjum Origo og verða sérfræðingar þeirra hluti af teymum fyrirtækisins.
Origo tilkynnti fyrr á árinu um kaup á félögunum tveimur með það að markmiði að styrkja stöðu sína á sviði gagna, gervigreindar og stafrænnar umbreytingar. Síðan þá hefur verið unnið að samþættingu starfseminnar og er þeirri vinnu nú lokið, að segir í tilkynningu frá Origo.
Með sameiningunni verði sérþekking Maven á sviði gagnagreiningar, gagnainnviða og viðskiptagreindar sameinuð þekkingu Datalab á ráðgjöf og innleiðingu gervigreindarlausna.
Viðskiptavinir félaganna munu áfram njóta sömu þjónustu og áður en jafnframt fá aðgang að víðtækara þjónustuframboði Origo.
Eftirspurn fer vaxandi
Haft er eftir Helga Hrafni Halldórssyni, forstöðumanni sameinaðs teymis gagna og gervigreindar hjá Origo, að eftirspurn eftir lausnum sem byggi á nýtingu gagna og gervigreindar fari vaxandi.
„Við sjáum sífellt meiri eftirspurn eftir lausnum sem sameina gögn, gervigreind og djúpan skilning á rekstri fyrirtækja. Með því að verða hluti af Origo fáum við enn sterkari grunn til að hjálpa fyrirtækjum að umbreyta gögnum í raunverulegt virði og nýta gervigreind á markvissan og ábyrgan hátt,“ er haft eftir Helga Hrafni.
Hann segir samþættingu félaganna hafa gengið vel og telur að með henni verði til eitt öflugasta sérfræðiteymi landsins á sviði gagna og gervigreindar.
„Við deilum sömu sýn á hvernig gögn og gervigreind geta hjálpað fyrirtækjum að ná betri árangri. Með þessari sameiningu verður til eitt öflugasta sérfræðiteymi landsins á þessu sviði og það skapar spennandi tækifæri til nýsköpunar og verðmætasköpunar fyrir viðskiptavini okkar,“ segir hann.
Mikilvægt skref
Þá er haft eftir Árna Geir Valgeirssyni, forstjóra Origo, að sameiningin sé mikilvægt skref í uppbyggingu fyrirtækisins.
„Við höfum skýra framtíðarsýn um að Origo verði fyrsti kostur fyrirtækja þegar kemur að stafrænni umbreytingu, gögnum og gervigreind. Með innkomu teymanna frá Maven og Datalab höfum við tekið stórt skref í þá átt,“ er haft eftir Árna Geir.
Hann segir sameinaða sérþekkingu félaganna gera Origo kleift að veita fyrirtækjum heildstæða þjónustu, allt frá stefnumótun og greiningu til innleiðingar og reksturs tæknilausna.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗