Íris sögð hafa veist að brotaþolum eftir réttarhald
Aðalmeðferð í máli gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur hélt áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Tveir þolendur í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur hafa fengið nálgunarbann á hendur henni.
Kemur þetta fram í umfjöllun Heimildarinnar, en heimildir mbl.is herma það sama.
Á Íris að hafa setið fyrir þeim ásamt fjölskyldu sinni á miðvikudagskvöld eftir þriðja dag aðalmeðferðar í máli gegn henni.
Eru þolendurnir annars vegar fyrrverandi kærasti hennar og hins vegar sambýliskona hans en stór hluti ákæruliðanna á hendur Írisi er vegna brota gegn þeim.
Tólf mánaða nálgunarbann
Nálgunarbannið varir í tólf mánuði en samkvæmt íslenskum lögum er það hámarkstími sem nálgunarbann má standa yfir í. Var það lagt fram fyrir dómara strax í morgun og mætti kærustuparið því ekki í dómsal í dag.
Frænka annars brotaþolans bar vitni í dag og sagði mikla sorg fólgna í því að parið viti nú að það munu aldrei geta um frjálst höfuð strokið vegna Írisar.
Íris er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. Aðalmeðferð í máli hennar heldur áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗