Foreldrar stúlku sem lést á Krýsuvíkurvegi urðu reiðir eftir minningarathöfnina - „Það var bara vanvirðing“

Foreldrar Hönnuh Jane Large, írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í ágúst ásamt tveimur íslenskum ungmennum, geta ekki fallist á að um slys hafi verið að ræða en vísbendingar séu um að bifreiðinni hafi verið ekið á rúmlega 200 kílómetra hraða. Þetta kemur fram í nýjasta blaði Heimildarinnar þar sem foreldrar Hönnuh stíga fram.

Foreldrarnir, Gregory og Samantha Large, rekja hvernig Hannah endaði á Íslandi og hvað þau vita um bílferðina örlagaríku. Þau lýsa því að í fyrstu eftir slysið hafi þau verið reið út í ökumanninn. Ekki sé hægt að tala um slys þegar um svona ofsaakstur er að ræða.

„Ég get ekki kallað þetta slys. Ég bara get það ekki,“ segir Gregory, en slys sé eitthvað sem eigi sér stað við eðlilegar aðstæður en ekki ofsaakstur. Þau segjast ekki reið í dag en urðu þó reið í minningarathöfn sem var haldin fyrir dóttur þeirra í Hafnarfirði. Athöfnin sjálf var falleg og þar sáu foreldrarnir hvað dóttir þeirra náði að snerta mörg líf á þeim stutta tíma sem hún hafði dvalið á Íslandi. En að athöfninni lokinni fannst þeim minning dóttur þeirra vanvirt.

„Þegar við vorum að fara úr minningarathöfninni voru þarna nokkrir strákar á bílunum sínum. Þeir þöndu vélarnar og þutu í burtu á ofsahraða. Það var bara vanvirðing við þann harmleik sem átti sér stað.“

Foreldrarnir hafa fengið takmarkaðar upplýsingar frá lögreglu. Þau hafa heyrt frá ungmenni sem var með í bílferðinni, sem þau telja hafa verið samflot 7-8 bíla, en það dugi ekki til. „Ég vil bara vita meira. Við verðum að skilja þetta,“ segir Gregory.

Þau syrgja nú framtíð sem Hannah var svipt: „Minningar sem aldrei urðu til. Að hún verði aldrei 21 árs. Að hún muni aldrei giftast. Að við munum aldrei fá í hendurnar börnin hennar,“ segir Samantha.

Ítarlegt viðtal við foreldrana ásamt viðtölum við vini Hönnuh má finna í nýjustu Heimildinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅