Jökull orðinn þjálfari Breiðabliks
Jökull Elísabetarson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta.
Þetta tilkynnti Breiðablik í dag en Jökull tekur við liðinu af Ólafi Inga Skúlasyni sem hætti eftir nýliðið tímabil.
Jökull var rekinn frá Stjörnunni í sumar eftir að hafa stýrt liðinu í rúm þrjú ár.
Hann lék 116 leiki með Breiðabliki frá 2010–2014 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2010.
Breiðablik hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð, 28 stigum á eftir Íslandsmeisturum Víkings R. Þá varð liðið bikarmeistari með sigri á Aftureldingu, 2:1, í úrslitaleik.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗