Blikar staðfesta ráðningu á Jökli - „Ég er stoltur og þakklátur“
Jökull I. Elísabetarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki.
„Jökul þarf ekki að kynna fyrir Blikum eða öðrum sem fylgjast með íslenskum fótbolta. Hann lék 116 leiki með Breiðablik frá 2010 til 2014 og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu árið 2010. Þá þjálfaði hann Augnablik á árunum 2017-2021 með góðum árangri, þar sem hann vann með mörgum ungum og uppöldum Blikum. Árið 2022 færði Jökull sig yfir hæðina og þjálfaði hjá Stjörnunni frá 2022 til 2026," segir á vef Blika.
Ólafur Ingi Skúlason var rekinn úr starfi eftir tímabilið en félagið ræddi einnig við Magnús Má Einarsson og Arnar Grétarsson um að taka ivð.
„Knattspyrnudeild Breiðabliks er afar ánægð með að fá Jökul til starfa. Með ráðningu hans verður haldið áfram að byggja á góðu starfi undanfarinna ára en karlalið félagsins hefur unnið þrjá stóra titla á síðustu sex árum. Auk þess hefur liðið í tvígang tekið þátt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu, en Blikaliðið mun hefja leik í undankeppni Evrópudeildarinnar um mitt næsta sumar. Auk þess mun 2. flokkur félagsins taka þátt í Evrópukeppni á næsta ári, í kjölfar þess að liðið varð Íslandsmeistari í síðasta mánuði," segir á vef Blika.
„Ég er stoltur og þakklátur að fá tækifæri til að koma til baka og þjálfa Breiðablik. Ég geri mér grein fyrir því að kröfur félagsins og stuðningsmanna eru miklar og ég ætlast til mikils af mér og liðinu. Ég vona að leikmenn hvíli sig vel í fríinu, þar sem við munum taka vel á því þegar þeir mæta til baka. Það eru spennandi tímar hjá félaginu og ég hlakka til að byrja. Ég treysti því að stuðningsmenn séu til í að búa til alvöru stemmningu með liðinu.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗