Komst að því í fjölmiðlum að eiginkonan hefði sótt um skilnað
Zac Affleck komst að því í fjölmiðlum að eiginkona hans, raunveruleikastjarnan Jennifer Affleck, hefði sótt um skilnað.
Jennifer, eða Jen eins og hún er kölluð, skaust upp á stjörnuhimininn í raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives á Disney+. Zac var tíður gestur á skjánum og hjónaband þeirra, erfiðleikar og barneignir voru oft á milli tannanna hjá áhorfendum. Hjónin eiga saman þrjú börn og eiga von á því fjórða. Börnin eru 5 ára, 3 ára og eins árs. Jen er 27 ára og Zac er 30 ára.
TMZ greinir frá því að Zac hafi komist að því í fjölmiðlum að Jen hafi sótt um skilnað á þriðjudaginn síðastliðinn eftir sjö ára hjónaband.
Hjónin hafa verið opin um hjónabandserfiðleika frá fyrstu seríu af SLOMW. Hugsanlega verður fjallað um aðdraganda skilnaðarins í nýjum þáttum, Secret Lives of Mormon Wives: Orange County. Fjölskyldan flutti frá Utah til Suður-Kaliforníu fyrir stuttu og munu nýju þættirnir fjalla um líf mormónakvenna í þeirri borg og koma á streymisveitu Disney í næstu viku.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗