Fólk hló að nýja Ferrari-bílnum – Nú komast færri að en vilja
Fyrsti rafmagnsbíll ítalska lúxusbílaframleiðandans Ferrari, sem ber heitið Luce, vakti mikla athygli þegar hann var kynntur í maí síðastliðnum.
Viðbrögðin voru þó langt frá því að vera öll jákvæð og sætti Ferrari harðri gagnrýni fyrir að hverfa frá þeirri hefð að framleiða kraftmikla sportbíla með bensínvélum.
Nú virðist hins vegar sem gagnrýnendur hafi vanmetið áhugann á bílnum. Samkvæmt ástralska fréttamiðlinum News.com.au er öll fyrirhuguð framleiðsla Luce fyrir næsta ár þegar frátekin og eftirspurnin slík að nýir kaupendur þurfa að bíða til ársins 2028.
Sjá einnig: Hlutabréf í Ferrari tóku skarpa dýfu eftir að hulunni var svipt af fyrsta rafbílnum
Benedetto Vigna, forstjóri Ferrari, greindi frá þessu á kynningarfundi vegna uppgjörs fyrirtækisins í vikunni.
„Allt sem við ætlum að selja á næsta ári er þegar frátekið,“ sagði Vigna og bætti við að reynsluakstur væntanlegra viðskiptavina á næsta ári myndi líklega auka eftirspurnina enn frekar.
Hann vildi ekki gefa upp nákvæmlega hversu margir bílar hefðu verið pantaðir en samkvæmt mati sérfræðinga í bílaiðnaðinum gæti fjöldinn verið á bilinu 1.000 til 1.100 eintök.
Þótt Luce sé knúinn rafmagni hefur Ferrari ekki slegið af kröfunum um afköst. Bíllinn er búinn fjórum rafmótorum sem skila samanlagt meira en 1.000 hestöflum. Hann kemst úr kyrrstöðu í 100 kílómetra hraða á aðeins 2,5 sekúndum og hámarkshraðinn er yfir 310 kílómetrar á klukkustund.
Drægni bílsins er rúmlega 530 kílómetrar og rafdrifskerfið er framleitt í verksmiðju Ferrari í Maranello á Ítalíu.
Verðmiðinn er ekki síður athyglisverður en bíllinn kostar á milli 80 og 90 milljónir króna.
Ferrari hyggst halda áfram að þróa rafmagnsbíla og stefnir að því að þeir verði 20 prósent af bílaframboði fyrirtækisins árið 2030. Aðrir bílar verða ýmist tvinnbílar eða knúnir hefðbundnum brunahreyflum.
Góðar viðtökur Luce eru jafnframt hluti af jákvæðum tíðindum fyrir Ferrari, en tekjur fyrirtækisins jukust um sjö prósent milli ára og hefur það hækkað tekjuspá sína fyrir árið 2026.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗