Mikil viðurkenning fyrir Wayne Rooney

Wayne Rooney er einn besti knattspyrnumaður í sögu Englands.

Wayne Rooney er einn besti knattspyrnumaður í sögu Englands. AFP/Peter Powell

Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins í fótbolta, var á fimmtudag útnefndur sparkspekingur ársins á Broadcast Sport-verðlaunahátíðinni.

Rooney, sem er 41 árs, tók við eftirsóttu verðlaununum við hátíðlega athöfn í London þar sem um 650 manns úr íþróttasjónvarpsbransanum voru samankomnir. Hann starfar sem sparkspekingur hjá breska ríkisútvarpinu, BBC.

„Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu erfitt þetta yrði þegar ég byrjaði fyrst,“ sagði Rooney um skiptin frá knattspyrnuvellinum yfir í sjónvarpsstúdíóið.

„Ég hef alltaf verið minn mesti gagnrýnandi. Enn þann dag í dag þarf ég að bæta mig og gera betur. Þetta krefst mikillar vinnu.“

Hefur mikla reynslu úr knattspyrnuheiminum

Rooney gerðist sparkspekingur eftir krefjandi þjálfaraferil.

Frumraun hans sem fastur sérfræðingur í Match of the Day í ágúst 2025 vakti blendin viðbrögð. Sumir áhorfendur gagnrýndu frammistöðu hans en aðrir voru jákvæðari.

Paul MacInnes, blaðamaður hjá Guardian, hrósaði Rooney fyrir frumraunina og sagði hann bæði skýran í máli og taktískt sterkan. Þá hefði hann mikla reynslu úr knattspyrnuheiminum til að miðla.

Rooney átti afar farsælan feril sem leikmaður. Hann varð meðal annars fimm sinnum Englandsmeistari með Manchester United, vann Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina, auk þess að vinna enska bikarinn og deildabikarinn þrisvar sinnum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅