Sendi skilaboð í nafni ömmu drengsins

Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur heldur áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sonur fyrrverandi kærasta Írisar Helgu Jónatansdóttur bar vitni í dag og lýsti því að Íris hafi meðal annars sent honum meiðandi skilaboð í nafni ömmu sinnar.

Aðalmeðferð í máli Írisar heldur áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 

Íris er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. Stór hluti ákæruliðanna á hendur Írisi er vegna brota gegn fyrrverandi kærasta hennar og sambýliskonu hans.

Þekkti hana ekki þegar skilaboð fóru að berast

Sonur mannsins hafði engin tengsl við Írisi þegar hún hóf að senda á hann skilaboð. Faðir mannsins hafði stofnað til skammlífs ástarsambands við Írisi og enginn samgangur var á milli sonarins og Írisar á meðan á því stóð. 

Segir hann Írisi hafa sent sér skilaboð, og einnig nánum fjölskyldumeðlimum, bæði af hennar persónulegu samfélagsmiðlareikningum og tveimur öðrum aðgöngum. Annar þeirra var í nafni föðurömmu hans.

Beit ekkert á hann í fyrstu

Í fyrstu hafi þetta ekki bitið á hann en eftir því sem fram liðu stundir og skilaboðum rigndi inn hafi runnið á hann tvær grímur.

Segir hann af innihaldi skilaboðanna að dæma að ekki komi til greina að annar aðili standi á bak við skilaboðin en Íris. Í skilaboðunum hafi Íris sagst vona að faðir sonarins myndi fremja sjálfsvíg, að faðirinn elskaði hann ekki og spurt hvernig syninum liði að móðir hans væri eiturlyfjafíkill. 

Þá hafði Íris sagst þekkja yfirmann sonarins og að hún myndi láta reka hann úr vinnu sinni. Ásamt því hafi hún keyrt upp að húsi sonarins og tekið þar upp myndskeið sem hún sendi honum.

Bersýnilegt uppnám

Sonurinn var bersýnilega í uppnámi þegar hann lýsti þeim andlegu afleiðingum sem framganga Írisar hafði haft á hann og föður hans.

Fannst honum skilaboðin óhugnaleg, sérstaklega í ljósi þess að Íris hafði vitneskju um hvar hann byggi og hafði vegið að starfsöryggi hans. 

Sagði hann föður sinn vera í uppnámi dagsdaglega og smeykan við að fara á almannafæri, meðal annars vegna miða sem Írisi er gefið að sök að hafa útbúið og dreift um Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ, sem vændu hann um áreitni, vörslu barnaníðsefnis og óviðeigandi framkomu við börn í bæjunum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅