Sjóðandi vatn og sódavatn úr sama krananum
Það er oft við eldhúsvaskinn sem dagurinn hefst og undirbúningur kvöldverðarins tekur við síðar meir. Þar er sótt vatn í morgunteið, pastapottinn og glösin þegar gesti ber að garði. Hollenski framleiðandinn Quooker, sem nú býður krana sína á Íslandi, hefur fært fleiri þessara verka á sama stað. Úr krananum fæst sjóðandi vatn og með CUBE-kælieiningu einnig kælt vatn, með eða án kolsýru.
Að baki býr einföld hugmynd: að hafa sjóðandi vatn við höndina þegar á því þarf að halda. Quooker sameinar hefðbundið blöndunartæki og krana fyrir sjóðandi vatn við 100 °C. Heita og kalda vatnið er notað með venjulegum hætti en sérstakur stjórnbúnaður opnar fyrir sjóðandi vatnið.
Morgunteið og undirbúningur kvöldverðarins hefjast gjarnan á sama stað, við eldhúsvaskinn. Ljósmynd/Aðsend
Frá morguntei að kvöldverði
Ýmis smáverk fylgja matargerðinni og við mörg þeirra þarf að bíða eftir að suðan komi upp. Það á jafnt við um tebollann sem og vatnið fyrir kúskúsið, pastað eða kartöflurnar. Með sjóðandi vatni beint úr krananum má sleppa þeirri bið og snúa sér að næsta verki.
Vatnið nýtist einnig þegar afhýða á tómata fyrir sósu eða súpu. Þegar borðhaldi lýkur getur það svo komið að gagni við að losa fitu úr pönnum og ofnfötum.
Undir vaskinum er geymir sem sér krananum fyrir sjóðandi vatni. Lofttæmiseinangrun dregur úr varmatapi og heldur vatninu heitu milli þess sem það er notað.
Við hönnun búnaðarins hefur einnig verið hugað að öryggi. Til að opna fyrir sjóðandi vatnið þarf að þrýsta tvisvar á stýrihringinn og snúa honum síðan. Stúturinn er einangraður og vatnið rennur í loftblandaðri bunu sem er hönnuð til að draga úr brunahættu. Þó þarf að gæta sömu varúðar og við aðra meðhöndlun sjóðandi vatns.
Með CUBE-kælieiningunni fæst einnig kælt vatn, með eða án kolsýru, úr sama krananum. Ljósmynd/Aðsend
Þegar gesti ber að garði
Þegar sest er að borðum eða vinir koma í heimsókn tekur kalda vatnið gjarnan við af því heita. Sumir kjósa það ókolsýrt, aðrir vilja sódavatn í glasið, kannski með sítrónusneið eða út í blandaðan drykk.
Með CUBE-kælieiningunni fæst kælt vatn úr sama krana, með eða án kolsýru. Þannig má fylla glös og könnur eftir þörfum án þess að geyma vatnsflöskur í ísskápnum.
Einingin stendur í skápnum undir vaskinum og við hana er tengd kolsýruflaska sem skipt er um eftir þörfum.
Hollensk hugmynd frá 1992
Fyrsti Quooker-kraninn kom á markað í Hollandi árið 1992. Síðan hefur úrvalið tekið breytingum og kranarnir fást nú í ólíkum útfærslum fyrir bæði nútímaleg og klassísk eldhús.
Eldhúskraninn er eitt þeirra smáatriða sem mikið mæðir á en setur um leið svip á innréttinguna. Sumir velja hann í takt við vaskinn eða höldurnar á skápunum, aðrir láta lit hans og áferð skera sig úr.
Hjá Quooker má meðal annars velja króm, ryðfrítt stál og svartan lit, auk áferðanna Gunmetal, Rose Copper, Gold, Patinated Brass og Brass.
Quooker-kranarnir fást hjá sex söluaðilum á Íslandi. Þar má skoða ólíkar gerðir og prófa hvernig búnaðurinn virkar. Quooker Ísland ehf. veitir jafnframt ráðgjöf um notkun, viðhald og varahluti.
Yfirlit yfir söluaðila og nánari upplýsingar er að finna á quooker.is.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/97/1689746.jpg)



