Brim kaupir eignir þrotabús Matorku
Eldisstöð Matorku við Grindavík. Ætlað er að nýstofnað dótturfélag Brims taki við rekstrinum eftir kaup á eignum úr þrotabúi félagsins. Ljósmynd/Martin Giskegjerde-Oclin
Brim hf. hefur fyrir hönd nýstofnaðs dótturfyrirtækis keypt allar eignir þrotabús Matorku ehf.
Matorka hefur í áraraðir sérhæft sig í eldi á bleikju, en fyrirtækið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta í kjölfar rekstrarerfiðleika vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.
Í færslu á vef Brims kemur fram að ætlunin sé að byggja á þeirri starfsemi og þekkingu sem þegar sé til staðar hjá Matorku og leggja áherslu á hagkvæman rekstur, vörugæði og sjálfbæran vöxt til framtíðar.
„Áætluð framleiðsla á næsta ári er rúmlega 1.000 tonn af heilli bleikju,“ segir þar.
Þá segir að með kaupunum skapist tækifæri til að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Brims á vinnslu matvæla og markaðssetningar og sölu þeirra á alþjóðlegum mörkuðum.
Kaupin eru jafnframt sögð gerð með hefðbundnum fyrirvörum, svo sem samþykki Samkeppniseftirlits og að tilskilin leyfi fáist vegna starfseminnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗