Loksins er Sol de Janeiro komið til Íslands
Margir hér á landi þekkja Sol de Janeiro og hafa beðið lengi eftir að merkið kæmi til Íslands. Loksins eru vörurnar komnar til Íslands og hægt er að nálgast þær hjá SKINCARELAB. Ljósmynd/Aðsend
Margir hér á landi þekkja Sol de Janeiro og hafa beðið lengi eftir að merkið kæmi til Íslands. Loksins eru vörurnar komnar til Íslands og hægt er að nálgast þær hjá SKINCARELAB, sem eru eini löglegu söluaðili Sol de Janeiro á Íslandi. Líkamskrem og ilmmistur innblásin af hlýju, lífskrafti og gleði.
Brasilísku líkamskremin og ilmmistrin hafa notið vinsælda um allan heim og margir íslenskir snyrtivöruunnendur þekkja þegar nöfn á borð við Brazilian Bum Bum Cream og Cheirosa ’62. Í nóvember lýkur biðinni þegar vörurnar koma í sölu hjá SKINCARELAB, bæði á netinu og í verslunum. Alda Júlía Magnúsdóttir vörumerkjastjóri segir frá eftirvæntingunni, kreminu fræga og ilminum sem margir þekkja við fyrstu úða.
Hvernig er að geta loksins sagt að Sol de Janeiro sé komið til Íslands?
„Það er svo gaman! Mörg hér heima þekkja merkið vel og hafa beðið eftir því að geta keypt vörurnar hér. Sum eiga sér nú þegar uppáhald, á meðan önnur hefur lengi langað að finna sjálf hvernig kremið fræga ilmar. Nú er loksins hægt að koma við, prófa áferðina og finna hvaða ilmur heillar.“
Kremið sem margir hafa beðið eftir
Ef þú ættir að mæla með einni vöru til að byrja á hver væri hún?
„Ég myndi byrja á Brazilian Bum Bum Cream. Það er þekktasta vara merkisins og gefur góða mynd af því sem Sol de Janeiro gerir svo vel. Kremið smýgur hratt inn í húðina, gefur henni raka og skilur eftir sig mjúka áferð og fíngerðan ljóma. Svo er það ilmurinn, Cheirosa ’62, sem margir tengja strax við merkið.“
Hvernig myndirðu lýsa ilminum?
„Hann er hlýr og sætur, með tónum af pistasíu, saltkaramellu, jasmíni og vanillu. Ef þú fellur fyrir honum í kreminu fæst hann líka sem ilmmistur.“
Hvað fleira verður í boði hjá SKINCARELAB?
„Úrvalið nær frá sturtuvörum og líkamsskrúbbum til krema og ilmmistra. Ef þig langar að byrja í sturtunni myndi ég skoða Brazilian Play Body Wash.
Ef þú vilt prófa eitthvað annað en klassíska Bum Bum-kremið eru Beija Flor™ Elasti-Cream og Delicia Drench™ Body Butter góðar vörur til að bera saman. Svo er gaman að gefa sér smá tíma til að prófa ilmmistrin og finna sinn uppáhaldsilm.“
Líkamskrem og ilmmistur frá Sol de Janeiro eru innblásin af hlýju, lífskrafti og gleði. Ljósmynd/Aðsend
Hvar er hægt að nálgast vörurnar?
„Þær fást loksins hjá SKINCARELAB, bæði á netinu og í verslunum. Ég hlakka til að sjá hvort Cheirosa ’62 verði í mestu uppáhaldi hér heima eða hvort einhver annar ilmur steli senunni.“
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


