Ágústa opnar sig um sambandið við Dr. Gunna
Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, og Ágústa Kolbrún Roberst, jógakennari, heilari og listakona eru nýtt ofurpar. Ágústa greinir frá þessu í hlaðvarpsþættinum Hæ hæ hjá Hjálmari Erni og Helga Jean.
„Nú erum við bara prumpandi saman,“ sagði Ágústa í gríni í þættinum. „Hann er alveg að dansa á morgnana, það er það fyrsta sem hann gerir og hann dansar ógeðslega fyndið og flott.“
Ágústa greinir betur frá því hvernig þau Gunni féllu fyrir hvort öðru. Ágústa var komin á þann stað í lífinu að kanna kynhneigð sína betur og einbeita sér að konum. Þá kom hins vegar Gunni inn í líf hennar og sendi henni skilaboð á Facebook.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗