Ágústa opnar sig um sambandið við Dr. Gunna

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni eru að hittast.

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni eru að hittast. mbl.is/Anton Brink

Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, og Ágústa Kolbrún Roberst, jógakennari, heilari og listakona eru nýtt ofurpar. Ágústa greinir frá þessu í hlaðvarpsþættinum Hæ hæ hjá Hjálmari Erni og Helga Jean. 

„Nú erum við bara prumpandi saman,“ sagði Ágústa í gríni í þættinum. „Hann er alveg að dansa á morgnana, það er það fyrsta sem hann gerir og hann dansar ógeðslega fyndið og flott.“ 

Ágústa greinir betur frá því hvernig þau Gunni féllu fyrir hvort öðru. Ágústa var komin á þann stað í lífinu að kanna kynhneigð sína betur og einbeita sér að konum. Þá kom hins vegar Gunni inn í líf hennar og sendi henni skilaboð á Facebook. 

Smartland óskar parinu til hamingju með ástina. 

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅