Færri farþegar en sætanýtingin aldrei betri
Sætanýting hjá Icelandair var 86,1% í október og hefur hún aldrei verið betri í mánuðinum.
Flugfélagið flutti 439 þúsund farþega í mánuðinum, 5% færri en í sama mánuði í fyrra. Þar af voru 36% á leið til Íslands, 21% frá Íslandi, 38% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands, að því er kemur fram í tilkynningu.
Farþegum á leið til Íslands fækkaði um 8% á milli ára og farþegum frá Íslandi um 2%. Tengifarþegum fækkaði um 6% en innanlandsfarþegum fjölgaði um 3%.
Framboð, mælt í sætiskílómetrum, dróst saman um 7% milli ára. Sætanýting var 86,1% og stundvísi 84,5%, sem er aukning um 3,2 prósentustig frá fyrra ári.
Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 12% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um 4% milli ára.
Kolefnislosun á tonnkílómetra jókst um 1% á milli ára. Meginskýringin er veður á Íslandi. Auk þess þurfti vegna óhagstæðra vinda að taka eldsneytisstopp á leiðinni til og frá nokkrum áfangastöðum í Bandaríkjunum, sem er óvanalegt.
„Farþegum Icelandair fækkaði lítillega milli ára en eins og við höfum áður greint frá höfum við markvisst aðlagað flugframboð okkar vegna mikilla hækkana á olíuverði, með því að draga úr flugi og flýta útfösun á eldri kynslóðum flugvéla. Á sama tíma slógum við met í sætanýtingu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.
„Í október hófum við flug til Tromsø í Noregi sem er nýr og spennandi vetraráfangastaður í leiðakerfi okkar. Við erum stolt af tvennum verðlaunum sem við hlutum í mánuðinum, Global SABRE-verðlaununum fyrir markaðs- og almannatengslaherferð ársins og Umhverfisverðlaun atvinnulífsins fyrir góðan árangur í að draga úr áhrifum félagsins á umhverfið og loftslagið. Verðlaunin eru til marks um metnað starfsfólks Icelandair til að bæta stöðugt rekstur okkar, þjónustu og árangur í umhverfismálum.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
