Vonar að Affleck verði hamingjusöm eftir skilnaðinn
Jen Affleck hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn, Zac Affleck, eftir sjö ára hjónaband. Skjáskot/Instagram
Raunveruleikastjarnan Jen Affleck, sem er þekkt fyrir þættina The Secret Lives of Mormon Wives, hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn, Zac Affleck. Nú hefur Zac Affleck opnað sig um skilnaðinn.
„Ég von að hún verði hamingjusöm í næsta kafla í þessu lífi,“ sagði Zack Affleck í tilkynningu á vef People og sagðist alltaf styðja eiginkonu sína. „Ég er bara að einbeita mér að börnunum okkar og átta mig á hvað tekur við næst.“
Eiga von á fjórða barninu
Skilnaðarfréttin vakti mikla athygli um allan heim enda raunveruleikaþættirnir gríðarlega vinsælir. Saman eiga hjónin þrjú börn og er það fjórða á leiðinni. Samband þeirra hefur verið stormasamt á undanförnum árum og hafa áhorfendur The Secret Lives of Mormon Wives fengið að fylgjast með erfiðleikum þeirra í hjónabandinu.
Frú Affleck sótti sum skilnað eftir sjö ára hjónaband. Þetta kemur fram í dómsskjölum sem fjölmiðlar vestanhafs hafa undir höndum. Hjónin kynntust árið 2018 á stefnumótaforriti og gengu í hjónaband í júní árið eftir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/97/1689724.jpg)