Bianca Censori rifjaði upp gamla takta og mætti fáklædd með stjúpbörnunum
Ástralski arkitektinn Bianca Censori hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið en vakti mikla athygli þegar hún mætti ásamt eiginmanni sínum, Kanye West, og stjúpbörnum á tískusýningu Yeezy.
Yeezy er fatamerki Kanye og var þetta fyrsta tískusýning hans í fjögur ár.
Bianca fór fyrst að vekja heimsathygli fyrir mjög efnislitlan og djarfan klæðnað árið 2023 og náði ákveðnu hámarki árið 2025 þegar hún mætti eiginlega nakin á Grammy-verðlaunahátíðina. Síðan þá hefur hún haldið sig að mestu til hlés og verið betur klædd. En arkitektinn rifjaði upp gamla takta fyrir tískusýninguna og klæddist samfesting með mjög djúpu hálsmáli.
Bianca Censori. Mynd/Getty Images
Mynd/Getty Images
Bianca og North West. Mynd/Getty Images
Bianca mætti ásamt börnum Kanye, sem hann á með fyrrverandi eiginkonu sinni, raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. North, 13 ára, Saint, 10 ára, Chicago, 8 ára og Psalm, 7 ára, mættu með Biöncu að styðja pabba sinn.
Kanye West ásamt börnum sínum. Mynd/Getty Images
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗