Tveggja daga fyllerí kostar hann ennþá um helgina

Jack Grealish verður ekki í leikmannahópi Everton þegar liðið mætir Coventry City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, staðfesti þetta á blaðamannafundi en Grealish hefur verið settur út í kuldann vegna agabrots.

Englendingurinn, sem er 31 árs, mætti ekki á æfingu í síðustu viku og samkvæmt enskum fjölmiðlum áttu starfsmenn félagsins erfitt með að ná sambandi við hann.

Grealish hefur þegar misst af tveimur leikjum gegn Newcastle og verður nú utan hóps þriðja leikinn í röð.

„Nei, Jack er ekki tiltækur. Ég ætla ekki að gefa upp áætlunina en við munum vinna með honum aftur fljótlega,“ sagði Moyes.

Þegar hann var spurður hvort hægt væri að laga sambandið í landsleikjahléinu svaraði hann:

„Við sjáum til. Við þurfum að bíða og sjá hvernig málin þróast.“

Samkvæmt The Sun fór Grealish út að skemmta sér tvö kvöld í röð áður en agabrotið átti sér stað.

Hann er sagður hafa farið á karókístað í London og síðar hitt nokkra knattspyrnumenn á krá.

Grealish, sem er í láni frá Manchester City, hefur leikið sjö leiki fyrir Everton á tímabilinu.

Moyes hefur áður lagt áherslu á að allir leikmenn verði að virða agareglur félagsins, innan vallar sem utan.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅