Framtíðin er björt í Hafnarfirði

Þjálfarar Guðjón Pétur Lýðsson, til vinstri, er aðalþjálfari Hauka og er nú einnig orðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar. Óskar Örn Hauksson, til hægri, er styrktarþjálfari liðsins samhliða því að vera yfirmaður knattspyrnumála. Ljósmynd/Haukar

Haukar leika í 1. deild karla í knattspyrnu á næsta tímabili eftir að hafa tryggt sér efsta sæti 2. deildar í sumar. Liðið hafði leikið sjö tímabil í röð í deildinni en undir stjórn Guðjóns Péturs Lýðssonar tókst að snúa blaðinu við.

Guðjón Pétur tók við liðinu síðasta haust eftir að hafa leikið með því tvö tímabil á undan. Hann segir að mikil vinna hafi verið lögð í að byggja upp nýtt lið og að ákveðin hugarfarsbreyting hafi orðið innan félagsins.

„Við fórum inn í erfiða 2. deild með nokkuð nýjan hóp miðað við árin á undan. Það var búið að leggja mikla vinnu í að setja saman lið sem gæti komist upp um deild. Við vorum með mjög ungt lið og marga uppalda leikmenn sem sumir komu heim frá öðrum félögum,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅