Aðsend grein: Ósköp venjulegur Íslendingur

Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason Mbl.is/María Matthíasdóttir

Aðsend grein úr Morgunblaðinu

Það segir frá því í Íslandsklukkunni þegar Jón heitinn Hreggviðsson komst til hollenskra duggara.

„Síðan gáfu þeir honum að éta afþví þeir sögðu að íslendíngar þyrftu altaf að lifa á bónbjörgum hjá útlendum þjóðum, annars dræpust þeir.“

Þessi lýsing á nokkuð vel við þremur öldum eftir dag Jóns og Sigurðar Snorrasonar, böðulsins, sem húðstrýkti hann fyrir að móðga kónginn með frillutali. Ósköp venjulegir Íslendingar eru um þessar mundir í minnihluta í landinu. Flokkur fólksins ætlar að útrýma fátækt í landinu með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum.

Aðgerðin við að útrýma fátækt er að færa barnabætur frá „efstu tekjutíunum“ til „fátækra“ fjölskyldna. Í raun er verið að gera „barnabætur“ að „fátækrabótum“. Þessi tilfærsla er til viðbótar við stighækkandi tekjuskatt, sem er önnur tegund tekjutilfærslna.

Orsakir fátæktar

Ritari tókst á við fjármálavanda fólks í starfi sínu fyrir margt löngu. Orsakir þessa fjármálavanda voru margvíslegar. Sjaldnast atvinnuleysi. Nokkrum sinnum allsherjar óregla. Og það sem skýrslur segja áratugum síðar, einstæðar mæður án menntunar. Álag hafði leitt af sér margvíslega heilsuáþján. Við fyrstu áheyrn virðist eiga að festa þetta ástand í sessi með nýjum barnabótum, til að gera ástandið þolanlegra. Það er vissulega svo komið að það má ekki gera kröfur til fólks í framhaldsskólum, og jafnvel ekki háskólum. Til þess að ala á átakafælni. Ekki dregur það úr fátækt. Og hvað svo?

Er ekki eitthvað að?

Á liðnum 30 árum hefur kaupmáttur launa tvöfaldast og tekjuöflun ríkissjóðs hefur fengið af því ríkulegan skerf. Nýir tekjustofnar hafa fært ríkissjóði ríkulegar tekjur. Nægir þar að nefna arð af Landsvirkjun og Landsbanka Íslands hf. og margvíslega skatta af fjármálastarfsemi, bæði fyrirtækja og einstaklinga.

Að auki hefur byrði af eftirlaunum aldraðra dregist verulega saman vegna aukins styrkleika lífeyrissjóða.

Á þessum 30 árum hafa allar ríkisstjórnir verið með aðhaldskröfur og alltaf lekur. Ritara er ljóst frjálslyndi við móttöku flóttafólks. Sá útgjaldaliður fór algerlega úr böndum. Og það sem verra er, leiddi til þess að Miðflokkurinn fann sér hillu. Að viðbættu bulli og málæði þingmanna þess flokks um önnur málefni.

Aðhaldskrafa hefur enga þýðingu. Það er nær að slá af viðkomandi þjónustu og starfsemi en að þrengja svo að ekkert gagn verði af.

Afskiptur hópur

Ritari hefur veitt því eftirtekt að velviljaðar lýðsleikjur hafa viljað gera allt fyrir alla, sem flokkaðir hafa verið hinir verst settu.

Eðli máls samkvæmt færist sá hópur til, sem er hinn verst setti, því þegar búið er að laga einn hóp, sem er verst settur, verður til nýr, sem er verst settur. Því er allt tal um „verst settu“ fullkomin rökleysa.

Sennilega kemur seint að þeim hópi, sem hefur þokkalegar tekjur af eftirlaunum frá lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðir hafa byggst upp á áratugum og eiga fyrir skuldbindingum sínum, fyrir utan B-deild LSR.

Hver er stuðningur lífeyrissjóða við Seðlabanka og banka?

Sennilega væri margt með öðrum og veikum hætti ef það hefði ekki átt sér stað að lífeyrissjóðir ættu tæpa landsframleiðslu í erlendum verðbréfum, sem bætir verulega erlenda stöðu þess, sem kallað er þjóðarbú. Það á að öðru jöfnu að draga úr þörf Seðlabanka fyrir gjaldeyrisforða.

Þessu til viðbótar standa íslenskir lífeyrissjóðir fyrir lausafjárþörf bankakerfisins gagnvart Seðlabankanum.

Hver er stuðningur lífeyrissjóða við ríkissjóð?

Sennilega er stuðningur lífeyrissjóða augljósari við ríkissjóð. Sá stuðningur er margvíslegur tekjustuðningur og að auki við að draga úr útgjöldum.

Það vill til að sú skattakvöð af iðgjöldum sem verður til við uppsöfnun í lífeyrissjóðum kemur til greiðslu þegar lífeyrir er greiddur út, með verðbótum.

Það vill einnig til að það er nokkur kostnaður af öldrun. Sá kostnaður er greiddur af lífeyrisþegum. Þannig eru lífeyrisþegar jafnt settir þeim sem aldrei hafa greitt til uppsöfnunar í lífeyrissjóðum. Til viðbótar við þetta er rétt að leggja mat á að stór hluti lífeyris er vextir og verðbætur. Að auki er rétt að leggja mat á tvísköttunaráhrif af arði og söluhagnaði af hlutabréfum í eigu lífeyrissjóða. Þannig verða skattaleg áhrif af hlutabréfaeign í hæsta þrepi tekjuskatts ekki 37,6% eins og þau verða í beinni eignaraðild einstaklings á hlutabréfum heldur 56,8%.

Verða lífeyrisþegar einhvern tíma verst settir?

Lífeyrisþegar eiga sér enga formælendur. Þeir velja sér sjaldnast stjórnarmenn. Þeir, sem fara með stjórnarsetu, eru fulltrúar verkalýðsrekenda og atvinnurekenda. Stundum er það eins gott, því sjálfsprottnir og sjálfumglaðir sjóðsfélagar hafa náð völdum í lífeyrissjóðum og þá er fjandinn laus. Fjármálaeftirlitið hefur ekki náð að snúa sér við þegar mestur skaði er skeður í umboðsvandanum.

Verkalýðsrekendur hafa aldrei fjallað um þessa gríðarlegu hagsmuni, sem sjóðsfélagar eiga. Þannig eiga sjóðsfélagar sér enga formælendur og vörn.

Skiptir þetta nokkru máli?

Ef til vill skiptir þetta ekki nokkru máli, því Seðlabanki Íslands hefur tekið sér heimild til að leggja bindiskyldu á innlán, sennilega án lagastoðar. Tilgangurinn með bindiskyldunni, sem er án vaxta, er að fjármagna gjaldeyriseign bankans. Slík eign er vörn við greiðslufalli ríkissjóðs.

Eða varabankastjóri Seðlabankans telur það hlutverk sitt og Seðlabankans að skapa atvinnuleysi til að stuðla að stöðugu verðlagi. Seðlabankann skortir alla lagastoð til að hafa áhrif á atvinnustig, eftir að bankanum var ekki falið að viðhalda fullu atvinnustigi. Þá er markmið Seðlabankans aðeins eitt, sem fyrr segir; að viðhalda stöðugu verðlagi. Þannig verður harmur heimatilbúinn.

Að þola kúgun og yfirgang

„Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgáng af meiri kurteisi en Íslendíngar. Um aldaraðir altframá þennan dag lifðu þeir í skilníngsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreistar. Eingri þjóð var byltíngarhugtakið jafn hulið. Ævinlega voru Íslendíngar reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sárast beit og trúa því að kaldrifjaðasti böðullinn væri sönnust hjálp þeirra og öruggast skjól.“

Allt er þetta satt og rétt þegar lýðsleikjur vilja gera allt fyrir þá, sem eru verst settir, á kostnað ósköp venjulegra Íslendinga.

Vilhjálmur Bjarnason var alþingismaður og er hagfræðingur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅