Óvænt nafn komið í umræðuna verði Carrick rekinn

Manchester United hefur haft samband við Didier Deschamps, fyrrverandi landsliðsþjálfara Frakklands, vegna mögulegrar ráðningar hans á Old Trafford.

Þetta kemur fram hjá franska félagaskiptablaðamanninum Santi Aouna hjá Foot Mercato.

Deschamps, sem er 58 ára, hætti með franska landsliðið eftir HM í sumar en hann stýrði liðinu í 14 ár.

Frakkinn er sagður hafa efasemdir um að taka við United en útilokar þó ekki möguleikann.

Michael Carrick er undir gríðarlegri pressu enda situr United í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins fyrir ofan fallsætin á markatölu.

Dramatískur 3-2 sigur gegn Roma í Meistaradeildinni hefur þó styrkt stöðu hans tímabundið.

United mætir Aston Villa á sunnudaginn og gæti tap orðið afdrifaríkt fyrir Carrick.

Fleiri þjálfarar eru orðaðir við starfið, þar á meðal Eddie Howe og Julian Nagelsmann.

Antonio Conte hefur einnig verið nefndur til sögunnar en Ítalinn hefur neitað því að vera í viðræðum við félagið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅