Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst á þriðjudag

Ferðamenn í Bláa lóninu.

Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst þriðjudaginn 10. nóvember klukkan 10 og stendur yfir til föstudagsins 13. nóvember.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember.

„Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B,“ segir í tilkynningunni.

Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland 20. nóvember.

Bláa lónið hf. býður til opins kynningarfundar í Hörpu þriðjudaginn 10. nóvember í tengslum við hlutafjárútboðið. Fundurinn er öllum opinn auk þess sem honum verður streymt á netinu.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅