Tix gæti að stöðu sinni á markaði

Frá tónleikum í Vodafone-höllinni árið 2015.

Frá tónleikum í Vodafone-höllinni árið 2015. mbl.is/Styrmir

Samkeppniseftirlitið hefur beint þeim tilmælum til Tix að fyrirtækið gæti að stöðu sinni á markaði og leggi upplýst mat á hvort það sé í markaðsráðandi stöðu.

Því er einnig beint til fyrirtækisins að yfirfara samninga við viðsemjendur sína og ganga úr skugga um að í þeim felist ekki einkakaup eða önnur samkeppnishamlandi háttsemi sem fara kunni gegn samkeppnislögum, að því er kemur fram í tilkynningu.

Samkeppniseftirlitið beinir einnig þeim tilmælum til helstu viðburðahúsa að grípa til aðgerða til þess að auka og auðvelda samkeppni á markaði fyrir miðasöluþjónustu.

Leiðbeiningarnar og tilmælin koma í kjölfar ábendinga um samkeppnisaðstæður á markaði fyrir rafræna miðasölu. Samkeppniseftirlitinu bárust á síðasta ári erindi frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og aðrar ábendingar um mögulegar samkeppnishindranir á miðasölumarkaði. Við meðferð málsins var aflað sjónarmiða Tix og nokkurra stærstu viðburðarhúsa landsins.

Tónleikagestir í Hafnarhúsinu.

Eitt miðasölukerfi erlendis

Í umsögnum viðburðarhúsanna kemur fram að notkun eins miðasölukerfis byggist meðal annars á hagkvæmni og þörfinni fyrir samræmda þjónustu. Í umsögn Hörpu er bent á að sambærileg tónlistarhús erlendis velji almennt eitt miðasölukerfi eftir útboð eða samningskaup þar sem fleiri fyrirtæki keppa um þjónustuna. Slíkt fyrirkomulag geti stuðlað að samkeppni án þess að viðburðarhús þurfi að nota mörg miðasölukerfi samtímis.

„Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið, með vísan til heimildar sinnar til að forgangsraða verkefnum og að teknu tilliti til annarra brýnna verkefna, að taka háttsemi Tix ekki til frekari rannsóknar á þessu stigi. Þess í stað hefur eftirlitið beint framangreindum tilmælum til Tix og helstu viðburðarhúsa. Eftirlitið áskilur sér rétt til að taka málið til frekari skoðunar síðar,“ segir í tilkynningunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅