Ævintýralegt myndband Robert Irwin frá Íslandi slær í gegn

Robert Irwin birti ótrúlegt myndband frá heimsókn sinni til Íslands sem hefur rækilega slegið í gegn á TikTok með tæplega 200 þúsund „likes“.

Robert er sonur hins heimsþekkta Steve Irwin heitins, einnig þekktur sem Krókódílaveiðimaðurinn. Robert hefur fetað í fótspor föður síns sem dýraverndunarsinni. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem sjónvarpsstjarna og vann til að mynda 34 seríu af Dancing With The Stars.

Robert var staddur á klakanum um mánaðamótin og birti nokkrar færslur á Instagram og TikTok þar sem hann líkti Íslandi við aðra plánetu. Robert er einnig ljósmyndari og sagði frábært að hafa fengið tækifæri til að mynda náttúrufegurðina hér á landi.

Robert er nú orðinn mikill Íslandsvinur. „Elska þig, Ísland,“ skrifaði hann með myndbandinu sem hefur vakið mikla athygli á TikTok og Instagram.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅