Ákall um höft á hluta útflutnings

Í pontu Hallveig Ólafsdóttir flytur ræðu á Sjávarútvegsráðstefnunni.

Í pontu Hallveig Ólafsdóttir flytur ræðu á Sjávarútvegsráðstefnunni. Morgunblaðið/Eggert

Ákall er um bann við útflutningi á óunnum fiski frá strandveiðum. Þetta er meðal þess sem fram kom á Sjávarútvegsráðstefnunni sem hófst í Hörpu í gær, en henni lýkur í dag.

Á ráðstefnunni fjallaði Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, meðal annars um möguleg neikvæð áhrif þess að flytja úr landi óunninn afla til lengri tíma.

Erfiðara væri að tryggja gæði og orðspor, auk fleiri þátta. „Það glatast þekking, reynsla og tækni,“ sagði hann.

Núna væru flutt út um 60 þúsund tonn meðan eðlilegri tala væri um 20 þúsund tonn, sem væri þá mest flatfiskur, því erfiðara væri að verka hann og neytendur vilji hann frekar heilan.

Gamall fiskur í erlendum vinnslum

Í umræðum kom fram að erlendir verkendur keyptu fisk á mörkuðum hér og sagði Ægir Páll Friðbertsson hjá Iceland Seafood dæmi um 10 til 12 daga gamlan fisk í vinnslunum. Það væri engin gæðavara.

Hann tengdi aukinn útflutning óunnins afla við strandveiðar og stakk upp á útflutningshöftum á VS-pott og frá strandveiðunum.

Hallveig Ólafsdóttir, skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu, sem flutti ræðu fyrir hönd ráðherra, upplýsti að uppi væru áform um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem meðal annars fælu í sér skýrari reglur um VS-afla.

Aukinheldur vinnur starfshópur um óunninn afla að minnisblaði sem verður innlegg í fyrirhugaðar lagabreytingar.

Í umræðum benti hún á að flókið væri að setja skorður eða gjöld.

Sjómaður sem seldi fisk á markað gæti ekki borið ábyrgð á því hvort þriðji aðili seldi hann svo óunninn til útlanda. Samstöðu þurfi um hvaða leiðir eigi að fara.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅