Allir leikir eru úrslitaleikir
Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson gekk í þýska félagsins Hannover-Burgdorf síðasta sumar eftir fjögur ár hjá Kolstad í Noregi, þar sem hann var fyrirliði síðustu tvö árin.
Sigvaldi mætti meiddur til Þýskalands en sneri aftur til keppni undir lok septembermánaðar. Hann segir erfitt að hafa mætt meiddur til nýs félags í nýju landi en sé nú allur að koma til og hlutirnir farnir að ganga vel.
„Ég mætti meiddur og er feginn að vera búinn að jafna mig og að þetta sé farið að rúlla vel. Það er erfitt að koma meiddur í nýtt lið í nýju landi en þetta er allt að koma til. Mér líður vel núna, líkaminn er góður og við ætlum að halda áfram. Ég vil líka halda mér frá meiðslum,“ sagði Sigvaldi í samtali við mbl.is.
Hallirnar alltaf fullar
Hjá Kolstad lék Sigvaldi yfirleitt með einu sterkasta liði norsku deildarinnar en Hannover-Burgdorf er ekki meðal fremstu liða Þýskalands. Liðið situr í níunda sæti deildarinnar með tólf stig eftir ellefu leiki.
Sigvaldi er þó mjög ánægður með skrefið til Þýskalands og segir frábært að fá að spila í sterkustu deild heims. Hann telur flutninginn hafa verið áskorun sem hann þurfti á að halda.
„Mér finnst alveg frábært að spila í þessari deild. Allir leikir eru eiginlega úrslitaleikir og maður er með þá tilfinningu fyrir hverjum leik. Hallirnar eru alltaf fullar og mikil stemning. Ég er mjög ánægður með þetta val. Ég hef haft það svolítið þægilegt í Noregi og þetta er því alvöru áskorun. Mér líður vel með það og finnst þetta gaman. Mér finnst þetta vera að gefa mér eitthvað aukalega.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗