Stærstu skjálftar við Kolbeinsey á árinu
Innlent | mbl | 6.11.2026 | 8:45
Skjálftar sem riðu yfir norðvestur af Kolbeinsey í gær eru þeir stærstu sem hafa sést þar síðasta árið, að sögn Jarþrúðar Óskar Jóhannesdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Aukin skjálftavirkni hófst í gærmorgun og þeir stærstu síðdegis mældust 3,4 og 3,5 að stærð.
„Það koma alveg skjálftar á þessum stað og það var hrina þarna aðeins sunnar,“ segir Jarþrúður.
Þó að virknin sé meiri að þessu sinni segir hún hana eðlilega.
„Það er ekkert sem bendir til þess að þetta sé eitthvað ákveðið. Þetta eru bara þessir skjálftar sem eiga sér stað á flekaskilunum.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗