Sparibíllinn bíður eftir þér

Viktor Urbancic hefur verið í bílasölubransanum í ríflega 40 ár.

Viktor Urbancic hefur verið í bílasölubransanum í ríflega 40 ár. mbl.is/Árni Sæberg

Það hefur heilmikið breyst í bílaviðskiptum á þeim 40 árum sem Viktor Urbancic hefur starfað í greininni. Rúnturinn á milli bílasala hefur að miklu leyti vikið fyrir leit á netinu, þar sem auðvelt er að leita að bíl eftir verði, stærð og búnaði. Eitt hefur þó síður breyst: fólk vill gjarnan sjá bílinn, setjast undir stýri, sparka aðeins í dekkin og taka prufurúnt áður en lokaákvörðun er tekin.

„Nú byrjar þetta bara heima í stofu,“ segir Viktor, eigandi bílasölunnar Sparibíls, sem aðstoðar fólk í bílahugleiðingum við að finna draumabílinn á sem hagstæðustu verði.

Hann segir fólk gjarnan byrja á að leita eftir verði, stærð, lit eða öðrum eiginleikum sem skipti það máli, svo sem hvort bíllinn sé beinskiptur eða sjálfskiptur, tveggja eða fjögurra dyra. Þegar úrvalið hafi verið þrengt niður í þrjá til fimm álitlega bíla taki við heimsóknir á bílasölurnar.

„Þú skoðar þetta bara í makindum á netinu og kemur svo og prófar bílinn. Þetta er ekkert flókið, bara þægilegt.“

Sparibíll er til húsa miðsvæðis í Reykjavík, nánar tiltekið í Hátúni 6a, þar sem auðvelt er að renna við og kynna sér úrvalið. Fyrirtækið hefur starfað í 22 ár og leggur áherslu á innflutning og sölu nýrra og nýlegra bíla. Viktor segir markmiðið vera að nýta hagstæð innkaup erlendis til að bjóða viðskiptavinum betra verð.

„Við erum eiginlega svona eins og pínulítið bílaumboð, erum sem sagt í bílainnflutningi.“

Bílaviðskipti að evrópskri fyrirmynd

Viktor segir starfsemina að nokkru leyti byggða á evrópskri fyrirmynd, þar sem bílasalar eigi sjálfir stóran hluta þeirra bíla sem þeir hafi til sölu. Þar sé algengara að bíleigandi fái kauptilboð frá nokkrum bílasölum, velji það hagstæðasta og ljúki viðskiptunum, í stað þess að skilja bílinn eftir í umboðssölu og bíða eftir kaupanda. Þannig gangi viðskiptin hratt fyrir sig og seljandinn losni við óvissuna um hvort og hvenær bíllinn seljist.

Með þessu fyrirkomulagi kaupi bílasalarnir sjálfir bílana sem þeir selji og velji þannig hvaða úrval þeir vilji bjóða. Sumir einbeiti sér að eldri og ódýrari bílum en aðrir að nýrri og minna eknum bílum.

Viktor hefur valið síðari leiðina. Hann segir það hafa reynst sér betur að einbeita sér að nýjum og nýlegum bílum, þar sem ástandið sé almennt fyrirsjáanlegra og bílarnir gjarnan enn í ábyrgð.

Hann bendir jafnframt á að innflutningur hafi orðið stærri þáttur í starfsemi margra íslenskra bílasala. Sparibíll hafi hins vegar langa reynslu af slíkum viðskiptum og innkaupum hjá erlendum bílaheildsölum.

Frá pöntunarþjónustu yfir í bíla á lager

Sparibíll hóf starfsemi sína árið 2004 á Skúlagötu. Upphaflega var ætlunin að reka fyrst og fremst pöntunarþjónustu og hafa fáa bíla á lager. Fljótlega kom þó í ljós að viðskiptavinir vildu geta komið á staðinn og séð bílana sjálfir, jafnvel þegar um nýjan bíl væri að ræða.

Innkaupin ýttu einnig undir breytt fyrirkomulag. Viktor segir Sparibíl hafa átt viðskipti við stórar bílaheildsölur sem meðal annars keyptu upp bílabirgðir á hagstæðu verði. Þegar tilboð bærust þaðan þyrfti oft að bregðast hratt við.

Úrvalið má kynna sér á sparibill.is.

Stundum hafi boðist bílar með 20–30% afslætti. Ef beðið væri eftir að finna kaupanda hér heima gæti tilboðið verið farið áður en hægt væri að ganga frá kaupunum. Annar aðili hefði þá þegar tryggt sér bílana.

„Þannig að það endaði einhvern veginn þannig að við fórum bara að kaupa bílana, setja þá á lager og stilla þeim upp.“

Þetta gerði viðskiptavinum kleift að skoða bílana á staðnum og fá þá jafnvel afhenta samdægurs. Fyrir Viktor þýddi það jafnframt að hægt væri að nýta hagstæð tilboð þegar þau kæmu upp.

Úrvalið fylgir óskum kaupenda

Viktor hefur mikið selt af sendibílum í gegnum tíðina, en að öðru leyti hefur úrvalið þróast með breyttum óskum kaupenda.

Á fyrstu árum Sparibíls voru bandarískir bílar á borð við Dodge Durango og Jeep Grand Cherokee vinsælir. Fyrir hrun var mikil eftirspurn eftir stærri jeppum og Viktor rifjar upp að þá hafi Mercedes-Benz- og Range Rover-jeppar verið til á lager í öllum litum.

Nú segir hann áhersluna einkum vera á rafbíla og tengiltvinnbíla. Verkefnið sé því ávallt að fylgjast með breyttum óskum fólks og haga innkaupunum í samræmi við þær.

Breyttar leitaraðferðir hafi líka áhrif á starfsemina. Áður hafi nálægð við aðrar bílasölur skipt miklu máli, enda ók fólk á milli þeirra til að kynna sér framboðið. Nú sé staðsetningin ekki jafn ráðandi. Kaupendur finni bílana á netinu og geri sér síðan ferð þangað sem þeir séu til sýnis.

Snöggar verðbreytingar hafa áhrif

Að sögn Viktors hefur reksturinn einnig tekið breytingum. Þegar mest var störfuðu þrír hjá Sparibíl en nú sér Viktor einn um starfsemina. Hann segir reksturinn hafa róast verulega í kjölfar vörugjaldahækkunar um síðustu áramót og telur mikilvægt að stjórnvöld leiti til fólks með reynslu úr greininni áður en breytingar séu gerðar.

„Það er svolítið sorglegt að þeir sem stjórna skuli ekkert tala við svona gamla karla eins og mig sem eru búnir að vera lengi í þessu. Þegar vörugjöldin eru hækkuð svona snöggt verður verðmunurinn á nýjum og nýlegum bílum svo mikill. Þeir sem vilja endurnýja bílinn sinn líta þá frekar á nýlegan bíl.“

Hann tekur dæmi um nýjan bíl sem kosti tíu milljónir króna og sambærilegan ársgamlan bíl sem sé auglýstur á níu milljónir. Hækki nýi bíllinn í tólf milljónir vegna breyttra gjalda þurfi verð þess notaða ekki að hækka samsvarandi. Kaupandinn standi þá frammi fyrir mun meiri verðmun en áður.

Viktor segir slíkar sveiflur geta haft langvinn áhrif. Dragist sala nýrra bíla mikið saman um tíma verði síðar minna framboð af nýlegum notuðum bílum. Það taki markaðinn tíma að ná jafnvægi á ný.

Viktor telur mikilvægt að stjórnvöld leiti til fólks með reynslu af bílaviðskiptum áður en breytingar eru gerðar. mbl.is/Árni Sæberg

Vextirnir snerta bæði kaupendur og seljendur

Viktor telur vaxtakostnað einnig hafa mikil áhrif á bílaviðskipti og svigrúm heimilanna til að endurnýja bíla sína.

„Fólk lætur það ganga fyrir að halda heimilinu. Þegar meira fer í afborganir og vexti verður minna eftir til að endurnýja bílinn, kaupa sér föt eða fara út að borða. Þetta er það sem fyrirtækin í landinu finna fyrir,“ segir Viktor.

Hann leggur meiri áherslu á þessi áhrif en til að mynda kílómetragjaldið þegar rætt er um breytta kauphegðun. Að hans mati skipti greiðslubyrði heimilanna miklu um hvort fólk treysti sér til að ráðast í bílakaup.

Hinum megin við borðið þurfi bílasalar að fjármagna bíla á lager. Viktor segir vexti af birgðafjármögnun geta numið 11–12 prósentum og sá kostnaður þurfi að standa undir sér í rekstrinum.

„Það verður alltaf erfiðara að halda verðunum lágum þegar fjármagnskostnaðurinn er hár.“

Að geta séð hvað verið er að kaupa

Viktor leggur áherslu á að viðskiptavinir geti skoðað og prófað bílinn áður en þeir ganga frá kaupunum. Hann segir það annað fyrirkomulag en að greiða fyrir bíl sem seljandi lofar að útvega en sé ekki enn kominn til landsins.

„Hér eru bílarnir á staðnum. Þú getur komið, skoðað þá og prófað áður en þú ákveður þig og jafnvel fengið bílinn afhentan samdægurs. Þú veist hvað þú ert að kaupa og við hvern þú átt.“

Hann hvetur fólk jafnframt til að fara varlega þegar óskað sé eftir háum fyrirframgreiðslum vegna bíla sem eigi eftir að útvega.

„Mér finnst mikill munur á því að koma í starfandi bílasölu og skoða bílinn sjálfur eða að greiða milljónir til aðila sem auglýsir á Facebook að hann geti útvegað bíl. Fólk þarf að vanda valið áður en það lætur slíkar fjárhæðir af hendi.“

Í lokin vill Viktor minnast á merki Sparibíls, sem hann er afar stoltur af. Hönnuður var fenginn til að útfæra merkið, sem hann segir lýsa starfseminni vel. Að hans sögn hefur það birst í hönnunarbók ásamt merkjum stórfyrirtækja á borð við Coca-Cola, Pepsi og IBM. Hann segir það mikla viðurkenningu fyrir lítið fyrirtæki að vera í slíkum félagsskap.

Nafnið sjálft felur líka í sér orðaleik sem tengist hugsuninni að baki starfseminni: að spara við bílakaupin og eignast um leið sparibíl, líkt og þegar fólk klæðist sparigallanum.

Nánari upplýsingar og úrval bíla má finna á sparibill.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅