Þetta eru þeir þrír áfangastaðir sem koma til greina ákveði Bruno að fara
Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. nóvember 2026 09:00
Bruno Fernandes - Youri Tielemans Getty Images
Óvissa ríkir um framtíð Bruno Fernandes hjá Manchester United en Portúgalinn gæti yfirgefið félagið næsta sumar.
Fernandes, sem er 32 ára, er samningsbundinn United til sumarsins 2027 en félagið hefur möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár.
Mikil umræða hefur verið um framtíð fyrirliðans eftir að hann gagnrýndi leikaðferð Michael Carrick í kjölfar 4-1 taps gegn Como í Meistaradeildinni.
Fernandes var í kjölfarið settur á bekkinn gegn Bournemouth en sneri aftur í byrjunarliðið og skoraði meðal annars í dramatískum 3-2 sigri gegn Roma.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Fernandes þegar gert upp hug sinn um hvaða áfangastaðir heilla hann mest ef hann yfirgefur Old Trafford.
Í viðtali við Canal 11 í desember síðastliðnum nefndi hann þrjá möguleika.
„Mig langar að prófa spænsku deildina og berjast um stóra titla á Ítalíu. Ég hef sterk tengsl við Ítalíu enda fæddist dóttir mín þar,“ sagði Fernandes.
Hann útilokaði heldur ekki endurkomu til Sporting í Portúgal.
„Ég hef hugsað um að snúa aftur til Portúgals. Sporting væri fyrsti kosturinn.“
Al-Hilal reyndi að kaupa Fernandes fyrir 100 milljónir punda árið 2025 en hann hafnaði tilboðinu.
Talið er líklegt að hann verði áfram hjá United út tímabilið áður en ákvörðun verður tekin um framtíð hans.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗