Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“

Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega áform Flokks fólksins um breytingar á barnabótakerfinu. Hann segir flokkinn ætla að berjast gegn fátækt á kostnað almennra launþega.

„Flokkur fólksins ætlar að útrýma fátækt í landinu með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum,“ skrifar Vilhjálmur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og barna- og menntamálaráðherra, greindi frá því í samtali við RÚV í lok október að hún vildi færa tvo til þrjá milljarða króna, sem nú renna til hátekjufólks í formi barnabóta, til tekjulægstu foreldranna.

Samkvæmt frétt RÚV búa um 10.500 börn á heimilum undir lágtekjumörkum. Inga kallaði eftir þjóðarátaki til að útrýma fátækt barna á Íslandi.

Vilhjálmur er ósáttur við þessa nálgun og telur að með henni sé verið að breyta grundvallarhlutverki barnabótanna.

„Í raun er verið að gera „barnabætur“ að „fátækrabótum“,“ segir hann og bendir á að tilfærslan komi til viðbótar við stighækkandi tekjuskatt.

Vilhjálmur rifjar jafnframt upp að hann hafi í fyrri störfum sínum fengist við fjármálavanda fólks og séð hversu fjölbreyttar orsakir hans geti verið. Atvinnuleysi hafi sjaldnast verið ástæðan, en hann nefnir meðal annars óreglu og erfiða stöðu einstæðra mæðra án menntunar.

Hann lýsir áhyggjum af því að auknar barnabætur geti orðið til þess að viðhalda vandanum í stað þess að ráðast að rótum hans.

„Við fyrstu áheyrn virðist eiga að festa þetta ástand í sessi með nýjum barnabótum, til að gera ástandið þolanlegra,“ skrifar Vilhjálmur.

Hann gagnrýnir jafnframt það sem hann telur skort á kröfum til fólks í framhalds- og háskólum og segir slíkt ala á „átakafælni“.

„Ekki dregur það úr fátækt. Og hvað svo?“

„Allt er þetta satt og rétt þegar lýðsleikjur vilja gera allt fyrir þá, sem eru verst settir, á kostnað ósköp venjulegra Íslendinga,“ skrifar Vilhjálmur að lokum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅