Samlegðaráhrif af eldi í sjó og á landi
200 mílur | Morgunblaðið | 6.11.2026 | 8:30
Sjókvíar. Hægt er að ná samlegðaráhrifum með því að tvinna saman eldi á landi og í sjó. Ljósmynd/Colourbox
Hægt er að auka hagkvæmni og öryggi framleiðslu í sjókvíaeldi með stuðningi frá landeldi.
Í nýlegu viðtali við Lagarlíf 200 mílna bendir Smári Guðfinnsson, fyrirliði vélateymis EFLU, á að með þessu megi ná áhugaverðum samlegðaráhrifum.
Til dæmis sé hægt að leyfa seiðum að ná meiri stærð í landeldisstöð áður en þau eru færð út í sjókví.
„Það styttir vaxtartímann í sjókvíunum úr tveimur vetrum í einn og þar sem fiskurinn er orðinn stærri þegar hann er settur í sjókvína er miklu minni hætta á að lús og önnur vandamál verði til ama,“ segir hann.
Allt viðtalið við Smára Guðfinnsson má lesa HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗