Bjóða einhleypum ókeypis til Finnlands
Nokkrir heppnir einstaklingar eiga þess kost að fara í ókeypis lúxusferð til Finnlands á næsta ári. Af hverju ekki að finna ástina í Finnlandi ef það gengur ekkert á Tinder eða Smitten?
Verkefnið er á vegum Visit Finland en það eru 16 einhleypir einstaklingar frá öllum heimshornum sem eiga þess kost að vinna fjögurra daga matarferð í febrúar á næsta ári. Ferðinni lýkur með blindu hópstefnumóti yfir kvöldverði.
Einhleypu einstaklingarnir þurfa hvorki að reiða fram krónu né að skipuleggja ferðina. Tveir átta manna hópar halda annað hvort til Helsinki eða Tampere, sem er í vatnahéraði Finnlands. Fólk fær hins vegar ekki að vita hvort það er á leiðinni til Helsinki eða Tampere fyrr en það staðfestir plássið.
Matur og ást í aðalhlutverki
Hver ferð er troðfull af matartengdri dagskrá fyrir aðalviðburðinn, hópkvöldverð á óvæntum stað þar sem vinningshafar hitta einhleypa heimamenn yfir smakkseðli. Í Helsinki kemur seðillinn frá Adele Kinnunen, yfirmatreiðslumanni á Café Savoy, sem hefur komið fram í MasterChef Professionals. Í Tampere, sem kallar sig gufubaðshöfuðborg heimsins, er það Henry Tikkanen á veitingastaðnum Gösta, sem hefur keppt fyrir hönd Finnlands í Bocuse d’Or.
Hugmyndin byggir á hinu vinsæla finnska Sinkkukori-æði, þar sem einhleypir viðskiptavinir taka bleikar körfur í matvöruversluninni til að sýna að þeir séu opnir fyrir því að kynnast einhverjum. Heli Jimenez, yfirmaður alþjóðlegrar markaðssetningar hjá Business Finland, sagði að gestir „gætu fundið ástina“ hver hjá öðrum, í finnskum mat eða í nýjum uppáhaldsáfangastað.
Tampere er einnig vinsæl borg og þangað fara líka nokkrir útvaldir. Ljósmynd/Unsplash.com/Frans Leivo
Hvernig er hægt að taka þátt?
Til að eiga möguleika þarf fólk að svara einni spurningu: Hvað myndir þú bera fram á stefnumóti yfir kvöldverði, og hvers vegna? Því næst þarf fólk að gera stutt myndband á ensku þar sem það svarar spurningunni. Það þarf að birta myndbandið á Instagram, TikTok eða YouTube með myllumerkinu #FinnishDinnerDate og merkja Visit Finland. Einnig þarf að fylla út umsóknareyðublaðið á FinnishDinnerDate.com með tengli á myndbandið.
Umsóknarfresturinn rennur út þriðjudaginn 10. nóvember og tilkynnt verður um sigurvegara 1. desember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
