Segja Hegseth og Rubio ekki á útleið

Pete Hegseth varnamálaráðherra og Marco Rubio utanríkisráðherra.

Pete Hegseth varnamálaráðherra og Marco Rubio utanríkisráðherra. AFP/Andrew Harnik

Hvíta húsið hefur vísað á bug orðrómi um að Pete Hegseth varnarmálaráðherra og Marco Rubio utanríkisráðherra kunni að láta af störfum í uppstokkun innan ríkisstjórnar Trumps í kjölfar þingkosninganna í landinu.

Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að kallað sé eftir því að Hegseth verði skipt út, einkum vegna framgöngu hans í Íransstríðinu, sem er kennt um mikið fylgistap Repúblikanaflokksins í kosningunum.

Einn fráfarandi þingmaður repúblikana hefur hótað að knýja fram atkvæðagreiðslu um embættismissi Hegseths strax í næstu viku, að því er BBC greindi frá.

Varnarmálaráðherrann birti myndbandsyfirlýsingu þar sem hann varði feril sinn og fordæmdi tilraunina.

„Þeir ráðast á mig. Þeir ráðast á okkur af því að við skilum árangri,“ sagði hann. „Það mun ekki takast. Við munum ekki gefa eftir,“ sagði hann.

Donald Trump í Hvíta húsinu í gær.

Donald Trump í Hvíta húsinu í gær. AFP/Mandel Ngan

Á sama tíma neitar Rubio fréttum um að hann íhugi að láta af embætti fyrir hugsanlegt forsetaframboð árið 2028.

Að starfa fyrir Trump til loka kjörtímabils hans hafi „alltaf verið áætlun mín“, sagði Rubio í viðtali við The New York Times.

„Ég elska starfið sem ég sinni,“ sagði Rubio. „Og auk þess hlæ ég alltaf þegar sagt er að hann ætli að hætta í starfi sínu. Ég spyr: „Hvaða starfi?““

„Falsfréttir“

Hvíta húsið og bandaríska utanríkisráðuneytið vísuðu einnig á bug fréttum um að Rubio kynni að hætta eftir ósigrana í þingkosningunum og kölluðu þær „falsfréttir“.

Meiri óvissa ríkir þó um pólitíska framtíð varnarmálaráðherrans.

Trump og JD Vance varaforseti hafa báðir kennt Íransstríðinu um fylgistap repúblikana, sem varð til þess að demókratar náðu fullum yfirráðum í fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkjaþings.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅