Fyrsta nóttin á bak við lás og slá – Augnablikið sem Russell Brand óttaðist
Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. nóvember 2026 08:35
Russell Brand Mynd: Getty
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand er sagður hafa verið skelfingu lostinn þegar hann eyddi fyrstu nótt sinni á bak við lás og slá eftir að hafa verið sakfelldur fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot í gær.
Breska blaðið Daily Mail greinir frá því að Brand, sem er 51 árs, hafi verið færður í fangelsi í suðurhluta Lundúna þar sem hann gekkst undir læknisskoðun og líkamsleit áður en honum var komið fyrir í fangaklefa.
Hörð dýna og þröngur klefi
Þar tók við gjörbreytt tilvera hjá leikaranum, sem hefur notið mikillar frægðar og lifað í vellystingum. Samkvæmt lýsingu miðilsins þurfti hann að skipta út dýrum jakkafötum og áberandi klæðnaði fyrir gráan fangelsisgalla og láta sér nægja þröngan klefa með harðri dýnu og frumstæðum aðbúnaði.
Brand er talinn hafa verið fluttur annaðhvort í Wandsworth- eða Belmarsh-fangelsið í Lundúnum. Vegna frægðar hans og eðlis brotanna er talið að fangelsisyfirvöld hafi sérstakar áhyggjur af öryggi hans.
Samkvæmt Daily Mail var fylgst náið með honum fyrstu nóttina og honum haldið aðskildum frá öðrum föngum.
Viðurkenndi óttann fyrir réttarhöldin
Daily Mail greinir jafnframt frá því að Brand hafi viðurkennt ótta sinn við fangelsisvistina í myndbandsþætti sem hann tók upp með eiginkonu sinni, Lauru Gallacher, skömmu áður en réttarhöldin hófust.
„Mér líkar ekki við aðstæður þar sem maður gæti þurft að fara í fangelsi,“ sagði Brand við eiginkonu sína.
„Já, ég veit, en það er einfaldlega hluti af því að vera fyrir rétti,“ svaraði hún.
Laura brast í grát þegar sakfellingin var kveðin upp í gær. Verjendur Brand óskuðu eftir því að hann fengi að kveðja eiginkonu sína og börnin þrjú áður en hann yrði færður í fangelsi, en þeirri beiðni var hafnað.
Brand, sem áður bjó í glæsilegu sex svefnherbergja stórhýsi í Oxfordshire, fékk samkvæmt fréttinni að halda eftir Biblíunni sinni þegar hann var færður í fangelsið. Hann hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á kristna trú sína.
Hann verður leiddur aftur fyrir dómara á mánudag þegar refsing hans verður ákveðin. Dómarinn hefur þegar gert honum ljóst að hann eigi yfir höfði sér þunga fangelsisrefsingu.
Lögmenn Brand eru sagðir íhuga að áfrýja sakfellingunni á þeim grundvelli að hann hafi ekki notið réttlátrar málsmeðferðar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗