Er Hjörtur óvinsæll í íslenska landsliðinu? - Tómas með kenningu eftir ummæli Arnars
Það vakti athygli þegar Hjörtur Hermannsson, miðvörður Gautaborgar, var ekki valinn í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni.
Hjörtur var heldur ekki í síðasta landsliðshópi en Arnar sagði þá að meiðsli hefðu komið í veg fyrir val hans. Hjörtur hafði þó leikið alla leiki Gautaborgar í aðdraganda landsleikjanna og hefur verið fastamaður hjá sænska félaginu.
Á blaðamannafundi í gær vísaði Arnar til þess að hann vildi halda áfram með sama takt og samheldni innan hópsins.
Hjörtur Hermannsson (fyrir miðju).
Málið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem Tómas Þór Þórðarson velti fyrir sér ástæðunum.
„Það er mjög auðvelt að draga þá ályktun að hann sé ekkert gríðarlega vinsæll meðal landsliðsmannanna og að það sé ekkert hægt að hafa hann í hóp,“ sagði Tómas.
Kári Snorrason benti á að Arnar hefði talað um mikilvægi samheldni þrátt fyrir að leikmenn hefðu farið á pókerklúbb á milli landsleikja í síðustu törn.
Tómas taldi frammistöðu Hjartar í Svíþjóð eiga að nægja til að tryggja honum sæti í hópnum.
„Gæinn er að spila alla leiki sem miðvörður með Gautaborg sem fær í mesta lagi á sig eitt mark í leik. Sama hvað hann gerir þá klukkar hann ekki hópinn.“
Daníel Leó Grétarsson var valinn þrátt fyrir að vera í leyfi frá AGF af persónulegum ástæðum og óvíst er hvort hann geti tekið þátt í leikjunum.
Hjörtur hefur leikið 32 landsleiki fyrir Ísland.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗