Arnar: Síðasti glugginn minn þar var stórslys

Arnar Gunnlaugsson í leiknum við Kósovó.

Arnar Gunnlaugsson í leiknum við Kósovó. Ljósmynd/Alex Nicodim

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfir á Spáni fyrir leik liðsins við Búlgaríu á útivelli í Þjóðadeildinni 13. nóvember næstkomandi.

Liðið dvelur á La Finca-hótelinu í Algorfa á Spáni þar sem allt er til alls. Þar æfði liðið einnig fyrir tvo leiki gegn Kósóvó í fyrsta verkefni Arnars, þar sem íslenska liðið fékk skell.

„Okkur líður mjög vel á Spáni en síðasti glugginn minn þar var stórslys,“ rifjaði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari upp við mbl.is. „Við lærðum af reynslunni og mistökunum,“ bætti hann við og hélt áfram:

„Það er frábært að vera þar, allt frábærlega sett upp og þessi aðbúnaður sem maður fær hjá stjórn KSÍ. Ferðatilhögunin er mjög hagstæð og við getum tekið góða endurheimt eftir leikinn við Búlgaríu,“ sagði hann.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅