Leiðtogi sértrúarsafnaðar gæti hlotið dauðadóm

Paul Mackenzie (í miðjunni) í dómsal í morgun.

Paul Mackenzie (í miðjunni) í dómsal í morgun. AFP/Luis Tato

Leiðtogi sértrúarsafnaðar í Kenía, sem var fundinn sekur um að hafa myrt 190 börn, á yfir höfði sér mögulegan dauðadóm þegar refsing hans verður kveðin upp í dag.

Hundruð líka hafa fundist frá árinu 2023 í bækistöðvum safnaðarins nálægt strandbænum Malindi. Málið hefur verið kallað „fjöldamorðin í Shakahola-skógi“.

Sjálfskipaði presturinn Paul Mackenzie var sakaður um að hafa hvatt fylgjendur sína til að svelta sig til bana til að „hitta Jesú“.

Í síðasta mánuði var hann sakfelldur fyrir að hafa myrt 190 börn og einn fullorðinn á tímabilinu janúar 2021 til september 2023, ásamt 28 sem einnig voru ákærðir. Lögmaður hans sagði að hann myndi áfrýja.

Paul Mackenzie í síðasta mánuði á meðan á réttarhöldunum stóð.

Paul Mackenzie í síðasta mánuði á meðan á réttarhöldunum stóð. AFP/Simon Maina

Hann er einnig ákærður í aðskildum málum fyrir manndráp og hryðjuverk, þar sem hann neitar sök.

Fyrrverandi leigubílstjórinn virtist áhugalaus þegar hann mætti í dómsal í morgun, klæddur pólóbol og með dauft bros á vör.

Francis Wanje, 62 ára kennari sem missti tvö barnabörn, sagði við AFP að hann vonaðist til þess að Mackenzie yrði dæmdur til dauða til að koma í veg fyrir frekari harmleiki.

„Ekkert getur linað sársaukann,“ sagði Wanje, sem kenndi yfirvöldum um að hafa ekki brugðist skjótt við.

„Ég ber í raun mikla (reiði) í garð yfirvalda. Ef þau hefðu gripið til aðgerða værum við ekki hér í dag,“ bætti hann við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅