Stefán Vagn ómyrkur í máli: „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 6. nóvember 2026 08:00

Stefán Vagn hefur setið á þingi síðan árið 2021. Mynd/aðsend

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hefur þungar áhyggjur af stöðu sérsveitar ríkislögreglustjóra. Mikið af búnaði sveitarinnar sé komið til ára sinna og uppfylli ekki lengur öryggisstaðla.

Í forsíðuumfjöllun Morgunblaðsins í dag er rætt við Stefán Vagn, sem var sjálfur í sérsveitinni um sjö ára skeið. Hann segir grafalvarlegt að sérsveitarmenn hafi þurft að nota einkabíla sína til að sinna útköllum eins og fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins fyrr í vikunni.

„Þegar ég var í þessum verkefnum var fjárhagurinn oft knappur en að setja sérsveitarmenn í útköll á einkabílum er náttúrlega grafalvarlegt mál,“ segir Stefán Vagn.

Morgunblaðið greindi frá því fyrr í vikunni að sérsveitin hefði jafnframt tekið í notkun bifreið frá síðustu öld sem áður hafði verið geymd á minjasafni lögreglunnar.

Stefán segir að ýmiss konar öryggisbúnaður sveitarinnar sé útrunninn.

„Sérsveitin er með alls kyns búnað eins og sjóöryggisbúnað, sigbúnað og allt mögulegt sem er einfaldlega á dagsetningum. Þú setur ekki menn í búning sem er útrunninn.“

Hann segir að stjórnvöld verði að gera upp við sig hvort þau ætli að halda úti sérsveit sem geti sinnt hlutverki sínu með öruggum hætti.

„Verkefnin sem sérsveitin er send í eru erfiðustu, hættulegustu og flóknustu verkefnin sem lögreglan tekur að sér. Ef við sjáum ekki sóma okkar í því að hún hafi það sem þarf til að sinna því er illa fyrir okkur komið,“ segir Stefán Vagn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅