Ekki útilokað að viðurkenna brot
Íslensk stjórnvöld útiloka ekki að viðurkenna samningsbrot vegna bókunar 35 fyrir EFTA-dómstólnum. Í minnisblaði utanríkisráðherra til utanríkismálanefndar, sem birt var í gær, eru tveir kostir nefndir, að andmæla kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) eða viðurkenna brot gegn EES-samningnum.
Ekki er tekin afstaða til þess hvor leiðin verði farin. Frávísunarkrafa, sem Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður hefur lagt til, virðist hins vegar ekki vera í myndinni.
Ráðherra hyggst óska eftir fresti fram yfir áramót til að skila greinargerð Íslands, en núverandi frestur rennur út 30. nóvember.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗