Óvissa ríkir um sigurboga Trumps

Erlent | AFP | 6.11.2026 | 7:06

Trump heldur á líkani af sigurboganum fyrr á árinu.

Trump heldur á líkani af sigurboganum fyrr á árinu. AFP/Andrew Caballeru-Reynolds

Bandarískur alríkisdómari stöðvaði í gær fyrirhugaðan sigurboga Donalds Trump Bandaríkjaforseta eftir að opinber nefnd hafði lagt blessun sína yfir verkefnið.

Héraðsdómarinn Tanya Chutkan úrskurðaði að ríkisstjórn Trumps mætti ekki hefja framkvæmdir við bogann risavaxna næstu tvær vikurnar á meðan dómstóllinn fjallar um mótbárur gegn lögmæti hans.

„Það verður engin aðstaða lík þessari til í öllum heiminum,“ sagði Trump í september síðastliðnum og bætti við að Washington DC væri eina höfuðborgin, af þeim 59 sem eru efstar á blaði, sem ekki hefði sigurboga. Þessi nýi sigurbogi yrði sá glæsilegasti af þeim öllum.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅