Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ráðist með hnífi á fyrrverandi eiginkonu sína í bænum Torsby í Svíþjóð síðastliðið sumar. Konan hlaut lífshættulega áverka og missti meðvitund í árásinni.

Sænska ríkisútvarpið, SVT, greinir frá málinu.

Samkvæmt ákærunni réðst maðurinn harkalega á konuna, sló hana ítrekað í höfuð og líkama, togaði í hár hennar og skar hana margsinnis með hnífi. Áverkarnir voru svo alvarlegir að konan var í lífshættu.

Saksóknari telur að árásin hafi verið heiðurstengd og tengist því að maðurinn hafi ekki getað sætt sig við að hjónabandi þeirra væri lokið.

„Þetta snýst meðal annars um að ákærði hefur ekki sætt sig við skilnaðinn og hefur ítrekað leitað til brotaþola í þeim tilgangi að fá hana til að taka saman við sig á ný, með ýmsum hætti,“ segir Lena Bohlin saksóknari í samtali við SVT.

Samkvæmt ákærunni var raunveruleg hætta á að maðurinn næði að bana konunni.

Maðurinn neitar því að hafa gerst sekur um tilraun til manndráps en hefur viðurkennt að hafa beitt ofbeldi.

Málið verður nú tekið fyrir hjá sænskum dómstólum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅